Fréttir / News                                              

Velkomin á heimasíðu Bjarkeyjar-ræktunar. Á þessari síðu finna allar þær helstu upplýsingar sem vita þarf um þá ræktun sem stunduð er Sperðli og fólkið baki henni. Einnig eru helstu upplýsingar um hundategundirnar tvær sem eru ræktaðar þar ásamt mörgum ljósmyndum.
Þann 20. desember 1999 var hundaræktuninni og hundahótelinu Sperðli veitt öll tilskilinn leyfi frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Héraðdýralækni, Dýraverndarráði og Lögreglustjóranum í Rangárvallarsýslu.

 

Heimasíðan var síðast uppfærð þann 10. október 2009

 

Enn vantar einum enskum cocker spaniel hvolpi gott heimili. Fallegur og geðprúður rakki. Verð 60.000.- Afhentur með ættbók frá HRFÍ, full bólusettur og örmerktur. Upplýsingar gefur Inga í síma 487 8070.

 

 

Aðall frá Sperðli var byggingardæmdur þann 14. maí og fékk 8,34. Hann er mjög stór og þess vegna ætlum við að láta þetta duga í bili og leyfa honum að öðlast meiri styrk áður en hann fer í hæfileikadóm. Geðslagið er mjög gott og það lítur út fyrir að hann sé fimmgangshestur.

 

Var að setja inn fleiri dóma um ræktun okkar, bæði cocker og boxer.

 

Bjarkeyjar Sólríkur og Classicway Cambridge Blue eru nú orðnir íslenskir sýningarmeistarar.

 

Boxer: Robinsteck In Her Shoes var besti hvolpur sýningar á sinni fyrstu sýningu eftir komuna til landsins (mars 2008). Á júní sýningunni 2008 varð hún 2. besta tík tegundar.

 

Enskur cocker spaniel: INTUCH ISCH Bjarkeyjar Eir varð annar besti öldungur sýningar á vorsýningu HRFÍ 2008. Á sumarsýningunni í júní sl. varð hún besti öldungur sýningar. Eir varð annar stigahæsti öldungur ársins 2008. Hún hefur ákveðið í samráði við fjölskyldu sína að hér með sé sýningarferli hennar lokið ;-)

 

Boxer: Bjarkeyjar Sólríkur hlaut sitt þriðja meistarastig og varð besti hundur tegundar og í þriðja sæti í tegundahópi 2 á sýningu HRFÍ sem haldin var helgina 23. og 24. júní 2007. Rakel Ósk varð besti ungi sýnandinn í eldri flokki með Jóker (ISCH Biding My Time at Faerdorn), ISCH Bjarkeyjar Tumi Þumall varð þriðji besti öldungur sýningar í yngri flokki.

Enskur cocker spaniel: Þöll Hnotudóttir í eigu Agnesar Geirdal varð besti hvolpur sýningar í eldri flokki en hún er undan Bjarkeyjar Snæfríði Íslandssól og Classicway Cambridge Blue (þrjú meistarastig og 2 CACIB). Það voru fimm hvolpar sýndir undan Classicway Cambridge Blue og hlutu þeir allir góða umsögn. Leirdals Fagurklukka, eigandi og ræktandi Þórdís María Hafsteinsdóttir, varð besti hvolpur tegundar, 4-6 mánaða. Hún er undan Bjarkeyjar Sölku Völku og Classicway Cambridge Blue.

Birta Dimmudóttir sem er rétt orðin níu mánaða varð besta tík tegundar og hlaut sitt fyrsta meistarastig en hún er undan ISCH Bjarkeyjar Belladonnu og Classicway Cambridge Blue.

 

Hér fyrir neðan eru myndir af Rakel Ósk sem voru teknar á Crufts, 2006,2007 og 2008, þar sem hún keppti í alþjóðlegri keppni ungra sýnenda. Þar taka þátt 36-40 unglingar frá jafn mörgum löndum og var hún valin í 10 og 12 manna úrslit árin 2006 og 2007.

 

Fyrir nokkru voru settar inn á hvolpasíðuna fleiri myndir af boxer-hvolpum ásamt myndum af cocker-hvolpunum hennar Goldu sem Agnes Geirdal tók. Endilega kíkið á heimasíðuna hennar þar sem eru stórkostlegar myndir af enskum cocker spaniel-hundum/hvolpum og öðru myndefni.

http://www.flickr.com/photos/ageirdal/

 

Einnig eru nýjar myndir af boxer-hundunum okkar Jóker, Gosa, Sneglu og Scrumpy á boxer síðunni.

 

 

Rakel Ósk varð stigahæsti keppandinn í eldri flokki ungra sýnenda árið 2005 og fór því að keppa fyrir hönd Íslands á Crufts, stærstu hundasýningu Bretlands, þann 12. mars 2006. Þar var hún var valin úr 37 unglingum í "top 10".

 

Rakel Ósk varð aftur stigahæsti ungi keppandinn í eldri flokki árið 2006 og var hún valin í "top 12" af  36 keppendum á Crufts 2007. Árið 2007 varð hún einnig stigahæsti ungi sýnandinn og keppti því aftur á Crufts árið 2008. Þar með var hún orðin of gömul til að taka þátt í keppni ungra sýnenda og þessum ferli hennar því lokið.  

 

 

 

Rakel Ósk á Crufts 2008 með

australian shepherd-hundinn

sem hún sýndi í keppninni.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Rakel Ósk á Crufts 2007 með

australian shepherd-hundinn

sem hún sýndi í keppninni.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Rakel Ósk, stigahæsti ungi sýnandinn, e.fl., 2005                               Rakel Ósk á Crufts 2005

  

Rakel á Crufts með Tibetan Spaniel frá Linsdown ræktun    Rakel og Jóker á júní sýningu HRFÍ 2006

 

Rakel og Jóker í júlí 2006

 

Arnarstaða Askur var valinn besti rakki á DÍF sýningunni í janúar 2006. Hann er með eitt meistarastig og tvö meistaraefni. Hann er augnskoðaður frír, með A mjaðmir og hefur einnig farið í skapgerðarmat.

 

   

Dómar sem Askur hefur fengið á sýningum HRFÍ:

 

14.01.2006. Ölfushöllin - Eivind Mjærum

Udmerket type, veludviklet junior - kraftig maskulin, meget god proportioner. Vakkert mask, hoved, saksebid. Kraftig, god benstame, gode poter. Velvinklet, velformet brystkasse, god lerop stram, fin overlinie. Beveger sig eff. med godt drive. Ex. pels leval. Röd brun med hvide tegn og sort maske.

1.sæti í ungliðaflokki, heiðursverðlaun, 1.sæti í opnum flokki, meistarastig, besti rakki, BHT ll.

 

25. 06.2006. Reykjavík - Liz-Beth C. Liljeqvist

Excellent - Masculine with very nice head. Relly good ears, eyes and nose. Ex. bones and pastern. Nice topline and angulation. Moves very well and free.

1.sæti unghundaflokki, heiðursverðlaun, 2. sæti í opnum flokki, meistaraefni, 2. besti rakki.

 

17.09.2006. Ölfushöllin - Zidy Munsterhielm - Ehnberg

45 1/2 cm. Prima type and storlak, aning grov in skallen, prima bett - bra ögon, nogot lagt ansætte ören, vel vinklat, prima kropp, utm. svans, enkla sporrar, ut. rörelser, bra pels, vel visat.

1.einkunn og 3.sæti í unghundaflokki.

 

08.10.2006. Reykjavík - Per svarstad

Lovely all over. Ex. head. Very dark eyes. Nice ears. Beautiful topline, Ex. body. Really strong bone. Ex. angulation. Beautiful coat. Very good mover. Shows very well.

1.einkunn og 1. sæti í unghundakeppnisflokki, 3.sæti í opnum flokki, meistaraefni, 4.besti rakki.

___________________________________________________________________________________________________ 

 

Arnarstaða Hrói

Hrói er nýi Íslendingurinn okkar og er albróðir Arnarstaða Asks.

Hann hefur verið sýndur tvisvar sinnum og fengið ex. + meistaraefni.  

 

 

 

                                                            Hrói 9 mánaða

                                                                                                                                                                                                                                                        _____________________________________________________________________________________________________

 

 


 ISCH
Bjarkeyjar Baldintáta